Einhvers staðar verður náttúrulega að byrja umræðuna um karlmennskustuðulinn hans Gísla og þessi staður er ekki verri en hver annar.
Til að gera langa sögu stutta fann Gísli það út, eftir langa yfirlegu, að frammistaða karlaliðs skokkhóps þess sem kennir sig við Val var mun verri en frammistaða kvenfélags sama skokkhóps í Powerade-hlaupum síðastliðins vetrar, raunar svo miklu verri að konurnar stóðu sig nákvæmlega 2,675x betur en karlarnir. Ákvað Gísli í framhaldi af þessu að framvegis yrðu karlar skokkhópsins ávallt merktir með þessum stuðli og til styttingar "st". Þeir sem innvígðir eru vita hvað það þýðir.
Árangur hópsins í fyrsta Powerade-hlaupi vetrarins var með ágætum og fólk hreinlega rakaði inn stigum. Ljóst er að aukinn aldur sumra félaga hjálpaði mikið til.
Árangur hópsins var eftirfarandi:
16-29 ára karlmenn... 40:42 St. Viktor Orri Pétursson 4 stig 40:51 St. Árni Heiðar Geirsson 3 stig 42:15 St. Arnar Ragnarsson 2 stig
35-39 ára karlmenn 41:06 St. Örvar Rudólfsson 9 stig 48:59 St. Ágúst Geir Ágústsson 50:06 St. Gísli Vilberg Hjaltason 55:30 Erla Sigríður Hallgrímsdóttir 60:26 St. Hilmar Þór Karlsson
40-44 ára karlmenn 46:24 St. Haraldur Haraldsson
50-54 ára karlmenn 43:45 St. Geir Jóhannsson 8 stig 50:13 St. Þorgeir Sigurðsson
55-59 ára karlmenn 61:45 St. Eiríkur Helgason 2 stig
Alls eru stig karlmannanna í hópnum 28 og uppreiknuð eftir stuðlinum fræga =28*2,675= 74,9
16-29 ára konur 51:03 Erla G. Ingimundardóttir 2 stig
30-35 ára konur 55:35 Hugrún Þorsteinsdóttir
40-44 ára konur 60:51 Elín Þóra Ingólfsdóttir
45-49 ára konur 52:31 María Franklin 5 stig 52:55 Þórdís H. Pálsdóttir 4 stig
50-54 ára konur 62:06 Hulda Ragna Gestsdóttir 7 stig
55 ára og eldri konur 69:53 Ragna María Ragnarsdóttir 6 stig
Alls eru stig kvennanna í hópnum 24 og uppreiknast ekki eftir neinum stuðli.
Þetta er auðvitað alveg eðlilegt...!
Það er því, eftir fyrsta hlaup, ekki nema um 50 stiga munur á konum og körlum! Af þessu hlýtur eitt að vera ljóst og það er hvort kynið hleypur eftir kjörorði Vals: "Látið ekki kappið bera fegurðina ofurliði"
Nokkra athygli vekur að Erla skuli teljast í hópi karla 35-39 ára. Helsta skýringin er líklega lúmsk tilraun herranna til aukinnar stigasöfnunar.
15. september 2011. Það var hausthlaup þetta árið vegna framkvæmda á marksvæðinu í vor.
Það voru tveir heppnir í hópnum okkar sem gengu burt með útdráttarverðlaun. Óli gerði sér lítið fyrir og nældi í aðalútdráttarvinninginn, flugferð fyrir tvo til Evrópu og síðan var það Hartmann sem vann flug innanlanda fyrir tvo. The force is with us í útdráttarverðlaununum a.m.k.
8. september 2011. Það var heldur svalt í Árbænum þetta kvöld. Unnum til ferna aldursflokkaverðlauna þar sem Ragna náði 1. sæti í sínum árgangi og síðan Geiri, Dóra, Stefanía náðu silfrinu í sínum flokki. Sem fyrr þá er það kvenfélagið sem stolt okkar í Valshópnum.
Það voru nokkrir sem skelltu sér í fyrsta hlaup þeirra víkinga. Flott hlaup hjá þeim nema hvað tímatakan var ekki alveg rétt. Gáufu um 10 sek betri tíma en raunverulegur tími. Sumir fóru aðeins hálfa leið.
Það ringdi PBum í hlaupinu hjá okkur. Náðum 3. sæti í sveitakeppni í maraþoni sem er hrikalega flottur árangur. Örvar og Óli náðu ekki plönunum sínum en kláruðu hlaupið engu að síður á ágætis tímum.
Gengið okkar sem ætlaði undir 2klst í sínu fyrsta 1/2 maraþoni stóð sig vel og komust 2 af 4 undir 2klst. Aðeins herslumuninn vantaði hjá Erlu Sigríði að ná því.
Þökkum Þórdísi fyrir að skipuleggja hóphitting við styttuna af Skúla fógeta. Rúllur, ber, döðlur og fleyðivín, ekki slæmt það. Legg til að þetta verði árlegur hittingur eftir RM.
Þar sem Geir okkr tekur þátt í fleiri keppnishlaupum en flestir kemur oft fyrir að hann skelli sér einn í hlaup sem hann finnur. Því er tilvalið að taka það saman af og til. Einn og einn annar Valsari slæðist stundum með.
Þorvalsdsskokkið 2. júlí 2011. 25km fjallahlaup. Sæti Tími 8 2:34:53 Geir Jóhannsson
Akureyrarhlaup íslenskra verðbréfa 30. júní 2011. !/2 maraþon. Sæti Tími 1 01:29:59 Geir Jóhannsson
Álafosshlaupið 12. júní 2011. 9. km hlaup. Sæti Tími 3 38:31.52 Geir Jóhannsson
Grafningshlaupið 4. júní 2011. 25 km utanvegahlaup. Sæti Tími 11 1:56:49 Geir Jóhannsson 24 2:07:51 Gísli Vilberg Hjaltason
Hvatningarhlaup Shri Chinmoy 8. maí 2011. 10 km hlaup Sæti Tími 1 41:24 Geir Johannsson 2 48:22 Hartmann Bragason
Miðnæturhlaupið fór fram við góð veðurskilyrði þ.e. logn og smá svalt. Margir náðu góðum bætingum og aðrir mjög nálægt sínu besta. Endilega látið vita ef mér hefur yfirsést einhver Valsskokkari.
Það voru þrír úr Valshópnum sem tóku þátt í gullsprettinum þetta árið. Náði Hartmann að verða fyrstur enda hentar svona ófærð honum vel en engu að síður frábær árangur hjá honum.
Valshópurinn sér um Valshlaupið og er von á flottu hlaupi á góðum brautum mældun af FRÍ. Hvetjum við alla til að skrá sig og taka þátt. Mun ódýrara er að forskrá sig. Upplýsingar um hlaupið eru hér og forskráningin á hlaup.is.
Blés hressilega og brekkan í lokin einstaklega erfið, samt mis erfið milli manna. Andri bætti sig um rúmar 2 mín í 10km og fær hann klapp, klapp, fyrir það. Ragna var einnig að bæta sig og gæti dottið undir 60 mín múrinn áður en langt um líður.
Það var svo gott sem logn á nesinu þennan daginn sem er ekki mjög algengt á þessum slíóðum. Nokkrir Valsarar skelltu sér og settu allir PB 7,5 km 46:33 Ragna Maria Ragnarsdóttir (PB)
Vormaraþon fór fram við kuldalegar aðstæður, stórhríð, kuldi en logn. Metþátttaka var í hlaupinu og náðust fínir tímar. Við Vals- skokkarar mættum vel að vanda og náðu margir PB. Við vorum 9 sem hófum hlaupið en Keli varð að hætta eftir 2km vegna krankleika. Sumir voru að bæta tímana sína um 4-5mín sem er mjög gott. Þessi frábæra byrjun á sumrinu lofar góðu og búast má við flottum afrekum í sumar.
Kökuhlaup Flóamanna fór fram í roki, rigningu og kulda eins og vanalega. Þetta var samt skemmtilegt hlaup eins og alltaf. Það náðust samt ásættanlegir tímar miða við veðrið og voru sumir að bæta tíman frá í fyrra. Gísli komst einnig á pall í sínum aldursflokki og munaði litlu að Andri kæmist einnig á pall.
Síðasta FH/AO hlaupið fór fram fimmtudaginn 24.03 og náðust flottir tímar hjá flestum hlaupurum okkar. Nokkur PB sáust og einnig komust Þórdís og Ragna á pall í lokahófinu. Það verður að segjast að þessi hlaupasería tókst mjög vel og vonandi verður framhald á þessu.
Það var mikill snjór og undarlegar aðstæður í marshlaupi ársins, einnig var -4°C og smá vindur og það var ekki sérstaklega freistandi fyrir marga því tæplega 200 sem skiluðu sér í mark. Gekk okkur vel að vanda og nældum í nokkur stig og sem fyrr var kvenfélagið feti framar í því eins og venjulega.
Á laugardeginum var haldið lokahóf powerade hlaupaseríunnar og mættum við að sjálfsögðu á þann viðburð. Helsta afrekið var hjá Höllu sem endaði í 2. sæti í sínum aldursflokki í seríunni. Einnig stóð Ragna sig vel og varð í fjórða sæti í sínum aldursflokki en hún keppti niður fyrir sig um einn flokk. Önnur afrek voru útdráttarverðlaunin en þar vorum við öllum fremri og tókum báða aðalvinningana, þ.e. Halla og Hilmar (hennar Dóru) fengu hlaupaskó og við hin sem vorum dreginn út fengum e-ð minna.
Það var rok og það var rigning en það var samt gaman. Fjölmenntum við í Valshópnum í hlaupið. Ingvi var sá eini sem setti PB en hann hafði ekki hlaupið þessa vegalengd áður í keppni. Dóra var nærstum búin að strauja Halla á síðustu metrunum og var ekki sátt með að brautin var ekki aðeins lengri.
Sæti Tími Nafn 30 20:08 Einar Jóhann Geirsson 33 20:12 Ólafur Björnsson 43 20:38 Örvar Rúdólfsson 48 20:57 Haraldur Haraldsson 50 21:08 Geir Jóhannsson 52 21:14 Gísli Vilberg Hjaltason 64 21:56 Ingvi Þór Hjaltason (PB) 109 24:04 Hallgrímur Stefánsson 110 24:07 Halldóra Hálfdánardóttir 127 24:56 Þórdís H. Pálsdóttir 129 25:03 Andri Thorstensen 163 27:05 Þorgeir Sigurðsson 187 28:46 María Franklín Jakobsdóttir 232 31:48 Ragna María Ragnarsdóttir
Það voru aðeins hetjur sem skelltu sér í Powerade hlaupið í þetta skipti. Dóra sýndi hver er húsbóndi á sínu heimili og vann Hilmar. Gísli sýndi hver er stóri bróðir og varð á undan Ingva og Pétri. Herra 100 átti gott hlaup þó hann hafi dottið rétt yfir 45 mín. Kvenfélagið var fámennt og mættu Þórdís, Dóra og Ásdís nýliði sem sýndi að það eru töggur í henni að mæta í þessu veðri. Það skal tekið fram að enginn setti PB í þessu hlaupi.......
Hlaupin var sama leið og hlaupin er í miðnæturhlaupinu, en hér er um 5km hlaup að ræða. Aðstæður vor því miður slæmar. Úti var rok, rigning og hálka, því voru tímarnir frekar slakir. Einn hlaupari varð fyrir því að hann rann í hálku, datt og slasaðist.
Fámennur hópur mætti frá okkur völsurum og stóðu sig með ágætum.
Ný hlaupasería fór af stað núna í janúar, Hlaupasería Atlantsolíu og FH. Þessi hlaupasería er svipuð og Powerade serían nema bara helmingi minni (5km og þrjú hlaup). Skemmst er frá að segja að þetta tókst mjög vel. Hlaupaleiðin er góð, veðrið var frábært og það eina sem ekki var gott var birtan. Það var full dimmt á sumum stöðum.
Við Vals-skokkarar mættum að vanda vel og stóðum okkur vel. Nokkrir vor að ná í PB sem er gott. Og margir fengu stig.